,,það er líf eftir dauðann”

Já það er líf eftir dauðann, hjá afskornum blómum að minnsta kosti, það veit Jóhanna Margrét Hilmarsdóttir, deildarstjóri Blómadeildar Garðheima. Í ,,Fólki með Sirrý” á Hringbraut á miðvikudag kl. 20:30 sýnir hún hvernig hægt er að endurlífga fallegar rósir og önnur afskorin blóm sem hengja haus og hafa gefist upp. Ráðið er að skera neðan af stilknum (himna myndast oft á blómastilkum og þarf að skera stilkinn til að opna aftur fyrir upptöku næringar), vefja blómið í dagblað svo krónan fái stuðning, stinga stilknum í sjóðandi heitt vatn í 30 sekúndur og geyma svo í kulda í nokkrun tíma. Setja blómanæringu í vatn – og viti menn blómvöndurinn ætti að sýna aftur sinn fyrri þokka. Gott er að geyma blómvöndinn í vasa útivið á nóttunni. Þetta og mörg fleiri ráð koma fram í þættinum. Hér er smá brot…