Það er ekki ónýtt að hafa utanríkisráðherra sem fer um lönd og álfur og stendur í lappirnar. Þannig fór Gunnar Bragi Sveinsson á fund helsta leiðtoga Ísraels í gærdag og kvikaði hvergi frá yfirlýstri stefnu íslenskra stjórnvalda um tveggja landa lausnina fyrir botni Miðjarðarhafs. Íslendingar hafa blessunarlega viðurkennt sjálfstæði Palestínu, þökk sé forvera Gunnars Braga á ráðherrastóli, en í ferð sinni í æðstu stofnanir Ísraela í gær fyrirvarð skeleggi Sakgfirðingurinn sig hvergi og hélt keikur á gunnfána mannréttinda, þótt svo hann stæði frammi fyrir einu ógeðslegasta aðskilnaðarafli heimssögunnar nú um stundir sem svíkur alþjóðasamþykktir í öll mál. Gunnar Bragi er með þetta; hvort heldur hann horfir millum augna á Rússagrýlunni, eða Ísraelsgamminum - og öðrum níðingum mannréttinda og landaþjófum ...
Hringbraut - lof dagsins
Fleiri fréttir
Nýjast