Það er fátækt í reykjavík

Ómar Valdimarsson mannfræðingur vinnur nú að rannsókn fyrir Reykjavíkurdeild Rauða krossins u fátækt í Reykjavík. Ómar var gestur í sunnudagsþætti Þjóðbrautar á Hringbraut.

Ómar segir staðreynd að meðal okkar sé fátækt fólk sem verði að koma til aðstoðar.

Auk þess að ræða um fátækt sagði Ómar frá lokaverkefni sínu í mannfræði sem var um Grímsey og Grímseyinga. Ómar ekki bjartsýnn fyrir hönd Grímseyinga. Hann segir samfélagið þar afar viðkvæmt.

Kostinn við lífið í Grímsey segir Ómar vera fámennið og samstöðu og að sama skapi sé það um leið veikasti þátt mannlífsins.