Það er engin skömm að vera fátæk

Það er engin skömm að vera fátæk og full ástæða til að skila henni beint til samélagsins sem hefur brugðist fjölda fólks sem lifað hefur lengi undir fátæktarmörkum í þessu landi sem telur sig að meðaltali vera svo fullkomið.

Þetta er tónninn í einhverju einlægasta Mannamáls-viðtali sem birst hefur á Hringbraut en þar fjallar sósíalíski borgarfulltrúinn Sanna Magdalena Mörtudóttir um hlutskipti sitt og móður sinnar í Breiðholti á árum áður þar sem óskólagengni leikskólakennarinn ogg skúringakonan varð að játa sig sigraða um og upp úr miðjum mánuði, svo árum skipti og safna ýmist dósum eða leita að klinki til þess að kaupa þó ekki væri nema myntrúllu fyrir þær mæðgur á tæplega 30 krónur sem áttu kannski að duga í nokkra daga fyrir mánaðamót, hvernig sem það var nú hægt. 

Sanna Magdalena segir þessa sögu á áhrifaríkan og hispurslausan hátt, meðal annars frá því þegar hún kom að mömmu sinni í eldhúsgólfinu, aðframkominni og rænulitla af langvarandi sulti  - og einnig frá því hvernig var að alast upp sem \"brúni Íslendingurinn\" innan um landa sína sem voru alltaf að reyna að flokka hana eða finna henni annan uppruna en íslenskan.

Hún segist vera komin til að vera í pólitíkinni á Íslandi og ætli að halda á lofti sjónarmiðum alls þess fjölda Íslendinga sem gróðasamfélagið hefur lítinn sem engan áhuga á - og það geri hún best utan meirihlutans í borgarstjórn svo hún geti talað þar frjálst og samningslaust. Og það muni heyrast í henni; það hafi í raun komið henni á óvart hversu tilbúin hún var í þetta mikla verkefni og áskorun, en hún sé raunar týpan sem vaði út í hylinn og láti ekkert stoppa sig.

Og hún talar líka um pabba sinn, Tansaníumanninn í Lundúnum sem hún lokaði á fyrir þremur árum eftir afar erfitt feðginasamband, en það sé auðvitað sárt að vita af honum bara einhvers staðar og geta ekki lengur gefið honum hlutdeild í velgengni dóttur sinnar.

Einn persónulegasti Mannamálsþáttur Hringbrautarsögunnar, sem frumsýndur var í gærkvöld er endursýndur í dag og um helgina, en er einnig aðgeengilegur á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.