Það er dýrt að skulda í krónum!

\"Það er dýrt að skulda í íslenskum krónum,\" segir Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, en hann telur háa vexti hérlendis vera frumorsök þess að hér á landi þurfi ríkið að greiða mun hærri vexti af lánum sínum en önnur Evrópulönd.

Rætt er við Ásgeir í Fréttablaðinu í tilefni af þeim tíðindum að kostnaður hins opinbera af lántökum er sá mesti sem þekkist í Evrópu, þó svo þess beri að geta í sömu andrá að skuldir landsins eru um og undir meðaltali Evrópulanda. Grikkland er eina landið innan OECD þar sem langtímavextir eru hærri en hér á landi.

Sjálfur gjaldmiðiillinn og verðbólgan valda jafn miklum kostnaði af lánum hér á landi og raun ber bitni, að því er Ásgeir segir í útekt blaðsins í dag á einum dýrustu peningum álfunnar. Gömul saga og ný sé að vextir á íslenska myntsvæðinu hafi verið allmiklu hærri en í helstu viðskiptalöndum okkar: \"Það stafar bæði af langvarandi verðbólgu og óstöðugleika sem og seljanleikaálagi vegna smæðar myntsvæðisins. Fyrir þetta þurfi allir lántakendur að blæða,\" segir Ásgeir.