Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fór hörðum orðum um bankana í ræðu á Alþingi í dag.
Það var útboð Arion banka sem gerði völdum hluta fjárfesta kleift að græða hundruð milljónir króna á útboði vegna Símans sem var kveikjan að ummælum þingmannsins.
Hann staðhæfði að römmustu spillingu legði nú frá bönkunum hér á landi. Fangelsi landsins væru hálffull af bankamönnum en örugglega væri pláss fyrir fleiri.
„Það er bankaskítafýla í landinu,“ sagði þingmaðurinn Ásmundur Friðriksson.