„það er ákvörðun að vinna hjá mcdonalds og það er ákvörðun að fara út í vændi“

Þingmennirnir Bjarkey Olsen Gunnardóttir VG og Brynjar Níelsson Sjálfstæðisflokki tókust á um vændi í Kastljósi kvöldsina á RÚV og greindi þeim mjög á. Bjarkey sagði að fólk færi út í vændi af neyð og þá spurði Brynjar hvert neyðin færi ef vændi yrði upprætt. Brynjar sagði: „Það er ákvörðun að vinna á McDonalds og það er ákvörðun að fara út í vændi. Fólk verður að taka ábyrgð á ákvörðunum sínum.“

Bjarkey sagði að vændi væri á ábyrgð kaupandans en því var Brynjar ósammála og vildi meina að ábyrgðin væri jafnt kaupanda sem seljanda. Brynjar sagði að samfélaglegir þættir yllu því að vændi þrifist og gagnslaust væri að herða refsingar. Hann sagði að fólk sem ekki væri á vinnumarkaði beitti mest þremur leiðum til að sjá sér farborða: Fíkniefnasölu, innbrotum eða vændi.

Nánar á

https://www.dv.is/frettir/2019/03/07/brynjar-thad-er-akvordun-ad-vinna-hja-mcdonalds-og-thad-er-akvordun-ad-fara-ut-vaendi/