Það eina sem börnin níu áttu sameiginlegt var að borða ís í efstadal: börnin gætu hafa smitað kálfana af e. coli

Níu börn smituðust af E. coli bakteríunni eftir að hafa komið í heimsókn á Efstadal II. Þar er veitingahús og ísbúð, en þar er einnig framleiddur ís sem seldur er í ísbúðinni á staðnum. Við hliðina á ísbúðinni er svo fjós þar sem kálfar eru til sýnis fyrir gesti og gangandi. Ekki komust öll börn í snertingu við kálfana. Þess má geta að aðrir gestir, börn, geta fengið að gefa kálfunum ís á staðnum, svo í raun gæti það hafa gerst að börn eða fullorðnir hafi smitað kálfana með því að gefa þeim ís sem innihélt E.Coli bakteríuna, en ekki öfugt líkt og eigendur töluðu um í fréttum í gær. 

Sóttvarnarlæknir hefur nú sent frá sér tilkynningu og vill árétta að ekki sé hægt að kenna kálfunum um að hafa sýkt börnin. Í tilkynningu segir:

  1. Bakteríurannsóknir sýndu að kálfar á staðnum báru sömu bakteríur og sýktu börnin.
  2. Helmingur barnanna hafði ekki verið í tengslum við kálfa á staðnum.
  3. Það eina sem öll börnin níu áttu sameiginlegt var neysla íss í Efstadal 2 en tíunda barnið smitaðist af systkini.
  4. Þær bakteríur sem sýktu börnin greindust með fundust ekki í ís á staðnum. Ísinn sem rannsakaður var, var hins vegar ekki sá sami og börnin höfðu borðað því ný framleiðsla var komin í sölu.
  5. Fleiri bakteríurannsóknir standa nú yfir, m.a. á starfsfólki staðarins. 

Af ofangreindu má því sjá að ekki er hægt að fullyrða að börnin hafi sýkst af umgengni við kálfa. Mögulegar smitleiðir á bænum eru margar en sterkustu faraldsfræðilegu tengslin eru við ís sem framleiddur var á staðnum.

Aðgerðir og ráðstafanir sem gripið var til beinast einmitt að því að rjúfa þessar smitleiðir með því að stöðva framleiðslu á ís og samgangi við kálfa á staðnum, og skerpa á vinnureglum og hreinlæti.