\"Allir hjúkrunarfræðingarnir sem eru að vinna með mér á þessari vakt ætla að segja upp,“ segir Sesselja Haukdal Friðþjófsdóttir, gjörgæsluhjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi.
Sesselja er í viðtali í Morgunblaðinu í dag og segir þar að sex hjúkrunarfræðingar séu með henni á vakt. Í blaðinu kemur fram að á gjörgæsludeild og vöknun í Fossvogi starfi hátt í 60 hjúkrunarfræðingar og segir Sesselja „mjög marga“ þeirra íhuga uppsögn. Er stór hluti þeirra nú þegar kominn með starfsleyfi í útlöndum, til að mynda í Noregi og Danmörku.
Sjálf er Sesselja með 30 ára starfsreynslu í þremur löndum og segir hún aðspurð við blaðamann Morgunblaðsins að starf gjörgæsluhjúkrunarfræðings krefjist gífurlegrar sérþekkingar enda sinni þeir veikustu sjúklingum landsins. „Það tekur viðkomandi starfsmann mörg ár að ná færni í að vinna með vélar á borð við öndunar- og nýrnavélar. Það er svo margt sem fólk lærir með árunum og aukinni reynslu. Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar, sem ekki eru búnir að sérmennta sig, hafa ekki þá reynslu sem nauðsynleg er,“ segir Sesselja við blaðið og bætir við að það sé grafalvarlegt þegar svo stór hluti hjúkrunarfræðinga íhugi eða hafi þegar ákveðið að segja upp.