Það á ekki að skattleggja öryggi

Flughálka hefur verið víða um land síðustu vikur og hefur ástandið kostað mannslíf í umferðinni.

Erling Ingvarsson, tannlæknir, telur eftir að hann ók fram á alvarlegt umferðarslys á Hrútafjarðarhálsi í gær að ríkið geti gert betur til að minnka slysahættu á vegum.

Ein leið til þess sé að fella niður gjöld.

„Komum að eftirleik slyss á Hrútafjarðarhálsi, vonum það besta og sendum hlýja strauma til ungu konunnar sem slasaðist alvarlega. Það er líka annað sem við getum gert og ég beini þessu til þingmanna og ráðamanna sem þetta sjá:
a) Afnemum innflutningsjgjöld á dekk og jafnvel virðisaukaskatt líka.
b) Afnemum sérstakan skatt á fjórhjóladrif (Co2-gjaldið hækkar verð fjórhjóladrifinna bíla m.v. bíla með tvíhjóladrif),“ skrifar tannlæknirinn í pistli.

Rök hans eru eftirfarandi: „Í aðstæðum eins og í gær og í dag þegar vegakerfið er meira og minna undir glærasvelli er það nánast bilun að ferðast á milli staða á Íslandi nema á fjórhjóladrifnum bílum á nýlegum nagladekkjum. Það á ekki að skattleggja öryggi, það slær í bakseglin í mannlegum kostnaði.“