Þá sprungu allir úr hlátri: missti stjórn á sér og sagði við sigmund: - „við erum öll með þráhyggju út af þér“ – sjáðu myndbandið

Þriðji orkupakkinn hefur verið til umræðu á Alþingi í morgun og mikið gengið á. Það var hins vegar mikið hlegið þegar Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins tókust á. Guðlaugur Þór sagði að Sigmundur Davíð hefði fyrir löngu fengið öll sín svör og hefði sjálfur farið til London til að ræða um sæstreng til Íslands í sinni tíð sem forsætisráðherra. Sigmundur Davíð sakaði Guðlaug Þór um að svara ekki einni einustu spurningu og bætti síðan við að Guðlaugur Þór væri með þráhyggju gagnvart sér.

Guðlaugur Þór kom þá í pontu, missti næstum stjórn á sér og hló og sagði:

„Þar kom að því, ég er kominn í meirihluta þjóðarinnar sem er með þráhyggju fyrir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að hans mati.“

Sigmundur Davíð skaut þá inn í:  „Það er langt síðan.“

Þá missti Guðlaugur Þór sig endanlega og allir í þingsal líka þegar hann sagði með miklum leikrænum tilburðum:

„Að sjálfsögðu, við erum öll þar. Við erum öll þar. Háttvirtur þingmaður, þú ert búinn að átta þig á þessu. Þetta gengur allt út á þig. Allt út á þig. Þriðji orkupakkinn, þetta er aukaatriði. Við erum öll með þráhyggju út af þér. Við getum ekki hugsað um annað en þig. Þú sást þetta.“

Hér fyrir neðan má sjá myndskeiðið en svar Guðlaugs er að finna eftir rúmar 70 sekúndur: