Þá sjaldan að gagn hefði verið af smá íhaldssemi

Stundum fer samfélagið fram úr sjálfu sér. Í einhverju hugarástandi fara menn að breyta lögum og reglum sem eru ekki vinsæl en þjóna samt einhverjum tilgangi. Á þannig stundum ættu góðir íhaldsmenn að biðja fólk um að telja á sér tærnar og hægja á.

Hvað sem menn vilja segja um uppreist æru og óflekkað mannorð þá var þarna ákveðið kerfi sem gaf jafnvel morðingjum og verstu níðingum færi á að setja ákveðinn endapunkt við fortíð sína og endurheimta öll sín borgaralegu réttindi. Það kann að vera óvinsæl skoðun en samfélög eiga, að mínu mati, að hafa þannig tæki í höndunum.

En þar sem nýting kerfisins ofbauð, að mörgu leyti réttilega, réttarvitund þorra fólks þá var þetta kerfi afnumið. Það var gert með hraði án þess að nokkuð annað væri sett í staðinn. Réttarríkið, stjórnarskráin, bann við afturvirkni refsinga, alþjóðlegar mannréttindakröfur. Allt þetta var undir, og allt varð að einhverju leyti undir.

Ætli skoðunum Sigríðar Andersen sé nokkur grikkur gerður með því að kalla hana íhaldskonu? En stóð hún, sem slík, og sem dómsmálaráðherra, vörð um klassíska íhaldssemi í þessum málum? Talaði hún um nauðsyn þess að fara sér hægt og ígrunda vel? Var hún á bremsunni? Ó, nei. Ekki aðeins var Sigríður Andersen með í þessari lestarferð heldur var hún sjálf í eimreiðinni að hlaða kolum í.

Nánar á

http://www.visir.is/g/2018181019593