Kári Stefánsson skrifar í Fréttablaðið þar sem hann segir að sér virðist engu skipta hvaða flokkar séu í ríkisstjórn, þegar þeir eru í stjórn starfi þeir allir eins. Í stjórnarandstöðu sé hins vegar munur á vinstri og hægri.
Að venju eru heilbrigðismál Kára hugleikin. Hann skrifar meðal annars: „Ég er því með tillögu til úrbóta: Fjármálaráð herra leggi fram frumvarp til fjáraukalaga nú í ágúst þar sem fé er veitt til þess að losa okkur við greiðslu þátttöku sjúklinga, Landspítalinn er efldur og heilsugæslan endurreist. Allir þingmenn, stjórnarandstöðu jafnt sem stjórnar, greiði frumvarpinu atkvæði og sýni þannig að þeir geri sér grein fyrir því að þeirra hlutverk sé að þjóna þjóðinni sem vill að þetta gerist. Að þessu loknu gætum við gengið til kosninga með svolitla gleði í hjarta og greitt atkvæði með þeim flokki sem við höfum minnsta fyrirlitningu á. Ef þetta gerist ekki er hætta á því að við kjósum öll Píratana vegna þess að þeir hafa í raun réttri enga pólitíska hugmyndafræði að hunsa, hafa ekki haft tækifæri til þess að svíkja loforð og þótt þeir séu harla lítið sem ekki neitt eru þeir býsna hip og kúl. Það er nefnilega þannig að óplægður akur í hraungrýti getur verið svo miklu meira aðlaðandi en illgresið í garð inum heima.“