\"þá er þetta búið\"

Í kveðju sinni sem formaður til níu ára sagði Árni Páll í setningarræðu sinni að hann yrði ekki samur eftir þá lífsreynslu að hafa leitt flokkinn á tímum þar sem úrlausnarefni stjórnmálanna hafi varla áður verið mikilvægari. Risastór viðfangsefni á sviði efnahagsmálanna hafi hann til að mynda verið vakinn og sofinn yfir.

Árni talaði um það sem hann taldi grunngildi jafnaðarmennskunnar og gagnrýndi m.a. harðlega í setningarræðu sinni tillögur Illuga Gunnarssonar, menntamálaráðherra um breytt lög um LÍN sem hann sagði skemmdarverk á því sem Gylfi Þ.Gíslason, fyrrum menntamálaráðherra Alþýðuflokksins hefði byggt upp. Hann gagnrýndi líka ráðherrann sem hann sagði vilja “gullna hraðbraut” á menntaskólastiginu og útiloka þá sem eru veikari fyrir fjárhagslega og félagslega. Jafnaðarmannahreyfingin hafi fyrir hundrað árum að búið til tækifæri fyrir þá sem höllum fæti standa. “Við skulum muna það að erindi þessa flokks er að skapa tækifæri ,styðja við fólk, og ef það þarf fleiri tækifæri, bjóða þá upp á enn fleiri tækifæri.”, sagði Árni og lauk svo ræðu sinni á þessum orðum: “Kæru samherjar, þá er þetta búið”, og uppskar hann mikið lófaklapp fundargesta sem stóðu upp og hylltu fráfarandi formann sinn.

Árni Páll hélt þar með sína síðustu setningaræðu en ætlar að starfa áfram í stjórnmálum.

Innan skamms verður ljóst hver tekur við sem formaður Samfylkingarinnar