„þá er betra að fá forseta sem heldur uppi lögum og reglu“

Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor og Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, eru sammála um að sigur hægriöfgamannsins Jair Bolsonaro í forsetakosningum Brasilíu megi rekja til spillingar vinstrimanna þar í landi og upplausnarástandsins sem skapaðist í stjórnartíð sósíalista í nágrannaríkinu Venesúela.

Einar Hannesson, aðstoðarmaður Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra, segir að brasilískir vinstrimenn hafi verið spilltir og veruleikafirrtir þegar kemur að efnahagsmálum. „Þá er betra að fá forseta sem heldur uppi lögum og reglu, hefur skynsamlega efnahagsstefnu,“ skrifar Einar. Þessi orðaskipti birtast á Facebook-síðu Hannesar Hólmsteins þar sem rætt er um nýkjörinn forseta Brasilíu. 

Nánar á

https://stundin.is/grein/7727/