Teymir steingrímur sjálfstæðisflokkinn út í ófæru?

 „Ætla Sjálfstæðismenn að láta hæstvirtan þingforseta draga sig út í slíka ófæru? Sama mann og stóð fyrir því að draga formann Sjálfstæðisflokksins fyrir landsdóm? Enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði með því að nokkur maður, hvorki Sjálfstæðismaður né Samfylkingarmaður, færi fyrir landsdóm. Á hvaða vegferð er Sjálfstæðisflokkurinn ef hann samþykkir valdníðslu eins og þá sem hér er uppi? Ég ætla að segja við háttvirta þingmenn Sjálfstæðisflokksins: Gjör rétt, þol ei órétt.“

Það var Ólafur Ísleifsson, utan flokka, sem sagði þetta á Alþingi í dag. Hann gagnrýndi Steingrím J. Sigfússon harkalega fyrir hvernig hann hefur tekið á Klaustursmálinu.

Nánar á 

https://www.midjan.is/teymir-steingrimur-sjalfstaedisflokkinn-ut-i-ofaeru/