Tengdadómari! er það málið?

Tengdadómari er nýjasta fyrirbrigðið í íslenskri umræðu og snýr vitaskuld að því hvort æðstu dómarar landsins geti rækt starf sitt af hlutlægni ef þeeir tengjast dómþolum einhvers konar fjármálaböndum.

Þetta er meðal helstu umræðuefna í Ritstjórum kvöldsins þar sem Jón Agnar Ólason, umsjármaður sérblaða Morgunblaðsins sest niður á rökstóla með nafna sínum Jóni Trausta Reynissyni, ritstjóra Stundarinnar.

Tíðindaleysi stjórnmálanna verður og til tals ásamt þýðingu austurrísku forsetakosninganna þar sem græninginn Alexander van der Bellen hafði betur gegn þjóðernissinnanum Norbert Hofer.

Ritstjórarnir byrja klukkan 21:30 í kvöld.