Telur tímaspursmál hvenær fólk á biðlista fari í mál við heilbrigðisráðherra

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, segir ákvæði sjúklingalaga brotið á hverjum degi vegna biðlista í liðskiptaaðgerðir. Hann telur að það sé einungis tímaspursmál hvenær einhver þeirra þúsund sem bíða eftir aðgerð færi í mál við heilbrigðisráðherra. RÚV.is greinir frá.

Þetta sagði Þorsteinn á þingfundi síðastliðinn föstudag. Á dögunum var lögð fram greinargerð á Alþingi um biðlista í heilbrigðiskerfinu. Þar kom fram að um þúsund manns að meðaltali hafa verið í þeirri stöðu að þurfa að bíða eftir liðskiptaaðgerðum.

„Það sem var sameiginlegt með öllum þeim fréttum var að það virtist koma öllum viðkomandi á óvart hvernig ástandið er. Það kom heilbrigðisráðherra í opna skjöldu að það skyldu vera þúsund manns á biðlista. Það er búið að vera viðvarandi í allavega 24–30 mánuði. Það kom forstjóra Sjúkratrygginga mjög á óvart að það skyldi kosta peninga að senda fólk til útlanda í aðgerðir. Þetta bendir ekki til þess að menn séu í tengslum við það sem þeir eru að fást við,“ sagði Þorsteinn.

Hann furðar sig á að Sjúkratryggingar Íslands hafi nýlega sagt upp samningi við einkastofur lækna sem hafa framkvæmt augasteinaaðgerðir með mjög góðum árangri. Sá samningur hafi stytt biðlista eftir slíkum aðgerðum verulega.

Þorsteinn vitnaði í 3. grein laga um réttindi sjúklinga þar sem segir meðal annars: „sjúklingur á rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er völ á að veita. Sjúklingur á rétt á þjónustu sem miðast við ástand hans og horfur á hverjum tíma og bestu þekkingu sem völ er á.“

Að mati hans er þetta ákvæði brotið dag hvern og telur Þorsteinn að það hljóti að leiða til þess að einhverjir þeirra þúsund sem bíði eftir liðskiptaaðgerð fari í mál við heilbrigðisráðherra.