Telur „sjálf­sagt“ að már sé látinn víkja

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri fiskiútgerðarinnar Samherja, fagnar nýbirtu áliti Umboðsmanns Alþingis og telur það „sjálfsagt mál“ að Má Guðmundssyni seðlabankastjóri og Sigríði Logadóttur, yfirlögfræðingur Seðlabankans, sé vikið úr starfi og segir þau hafa vísvitandi hafa farið fram með „refsiverðum hætti“.

Fréttablaðið greindi fyrst frá því fyrr í dag að Umboðsmaður Alþingis hafði skilað áliti sem sýnir framgöngu starfsmanna Seðlabankans í aðdraganda stjórnvaldssekta sem lagðar voru á Samherja árið 2016 í mjög slæmu ljósi. Þorsteinn segir í samtali við Fréttablaðið að álit umboðsmanns styðji frásögn hans af málavöxtum. „Þetta styður það sem ég hef verið að segja í gegnum árin og ég tel í raun að það komi líka fram í áliti umboðsmanns að seðlabankinn hafi vitað af því að þau hafi verið að brjóta lög,“ segir Þorsteinn í samtali við Fréttablaðið.

Frá því að deilur hófust um umræddar stjórnvaldssektir hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra óskað eftir skýrslu frá bankaráði Seðlabankans um málsatvik. Þorsteinn segist bíða eftir skýrslunni áður en næstu skref verði ákveðin. „Ég bíð eftir niðurstöðu bankaráðs. Það átti að skila þessari skýrslu í byrjun desember en það hlýtur að fara styttast í hana,“ segir Þorsteinn. „Við ætlum að bíða og sjá til hvað þau [bankaráð, innsk. blaðam.] leggja til að gera.“