Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir Framsóknarflokkinn stefna í glötun verði vilji formannsins, Sigurðs Inga Jóhannssonar, að veruleika. Sigurður viðraði nýlega þá hugmynd að öllum launahækkunum yrði frestað um eitt ár vegna Covid-kreppunnar.
Útfarardagur innan seilingar
„Ég tel að með þessari vangaveltu formanns framsóknarflokksins um að fresta öllum launahækkunum um eitt ár hafi hann verið að tilkynna um leið útfarardag framsóknarflokksins,“ skrifar Vilhjálmur á Facebook síðu sinni. Útfarardagurinn yrði 25. september á næsta ári þegar gengið verður til kosninga.
Vilhjálmur telur það vera af og frá að fresta 24 þúsund króna launahækkun til verkafólks um ár, það væri fásinna.
Blóm og kransar afþakkaðir
„Þá væri hægt að segja að blóm og kransar á útfarardegi framsóknar séu afþakkaðir, en þeir sem vilja minnast flokksins er bent á að hægt er að styrkja verkafólk á lágmarkstöxtum,“ ítrekar verkalýðsleiðtoginn.
„Ég reyndar tel einsýnt að þessi hugmynd hafi klárlega verðið rædd við ríkisstjórnarborðið, enda fráleitt að formaður framsóknar viðri svona hugmynd án þess að fleiri séu henni sammála,“ bætir Vilhjálmur við.
„Það kemur ekki til greina að launahækkanir verkafólks verði teknar í burtu með lagasetningu.“
Ég tel að með þessari vangaveltu formanns framsóknarflokksins um að fresta öllum launahækkunum um eitt ár hafi hann...
Publicado por Vilhjálmur Birgisson em Domingo, 30 de agosto de 2020