Óttar Yngvason lögmaður náttúruverndarsamtaka og veiðiréttarhafa segir sjókvíaeldi í Patreksfirði og Tálknafirði úr sögunni eftir niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Hann segir það staðleysu að niðurstaðan þýði atvinnuleysi.
Úrskurðarnefndin felldi úr gildi rekstrarleyfi og starfsleyfi Fjarðarlax og Arctic Sea til laxeldis í sjókvíum í Patreksfirði og Tálknafirði og vísaði einnig frá beiðni fyrirtækja um frestun réttaráhrifa.
„Ég tel að þetta laxeldi sem fyrirhugað hefur verið í Patreksfirði og Tálknafirði sé núna endanlega úr sögunni. Reyndar hafa eldisfyrirtækin norsku tilkynnt að þau ætli að bera þetta mál fyrir dómstóla og ég og mínir umbjóðendur, sem eru náttúruverndarsamtök og veiðiréttareigendur víða um land, við höfum engar athugasemdir við það að bera þetta undir dómstóla og það er rétta leiðin,“ segir Óttar Yngvason lögmaður kærenda í málinu.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/telur-eldi-i-patreksfirdi-og-talknafirdi-buid