Telur börn alin upp þannig að þau lendi aldrei í mótbyr – „hættum að búa til aumingja“

Í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag ræðir Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundar, um uppeldi barna nú á dögum. Hann er sjálfur margra barna faðir og þykir sem foreldrar nú til dags ali börnin sín upp á þann hátt að þau lendi aldrei í mótbyr. „Passa upp á að ekkert alvarlegt komi fyrir þau og ef það skyldi gerast þá leysa foreldrarnir úr málum barnanna, ekki börnin sjálf,“ segir Gísli.

„[Þ]etta gengur svo langt að til dæmis í Bandaríkjunum hafa foreldrar samskipti við framhaldsskóla/háskóla barnanna vegna inntökuprófa þeirra og kæra jafnvel prófniðurstöður barna sinna (sem eru þó komin á þrítugsaldurinn) séu niðurstöðurnar ekki börnunum þóknanlegar. Þessu trúi ég alveg. Og ég hef eflaust gert eitthvað slíkt í þágu minna barna, þó ekki jafn svakalega klikkað og framangreint,“ bætir hann við.

Gísla lýst illa á þessa þróun. „[M]eð þessu er verið að búa til aumingja. Ungt fólk sem þarf aldrei að taka ábyrgð á sér og sínu lífi. Ekki horfast í augu við afleiðingar þess að hafa til dæmis ekki lært nógu vel fyrir eitthvert mikilvægt próf og fengið „bara 8“ en ekki 9 í einkunn. Börn verða ekki fullorðin nema að fá að takast á við lífið, gera mistök og greiða úr þeim, standa á eigin fótum.“

Hann telur að þróunin hafi verið á þann veg að slík afskipti foreldra hafi færst í aukana á undanförnum áratugum. „Hef það á tilfinningunni. En kannski kemur þessi umræða alltaf upp öðru hvoru, með áratuga millibili, og það eru svona miðaldra kallar eins og ég sem finnst heimur versnandi fara. Vonandi.“

„Við sem erum foreldrar höfum eflaust rutt smá snjó úr vegi barna okkar og svo sem í lagi á meðan þau hafa ekki þroska, vit og getu til að takast á við hluti sem koma upp á í lífinu. En hættum að búa til aumingja, leyfum börnunum að takast á við lífið, verða fullorðnir og ábyrgir einstaklingar. Annars verður enginn með viti til að taka við af okkur þegar við setjumst í helgan stein,“ segir Gísli að lokum.