Telur birtingu launa tímaskekkju

Þorsteinn Víglundsson framkvæmdstjóri Samtaka atvinnulífsins kveðst vera mótfallinn því að birta skattskil nafngreindra Íslendinga eins og gert er í sérstökum tekjublöðum um þetta leyti árs.

Þorsteinn var gestur Launaþáttarins á Hringbraut í gærkvöld þar sem fjallað var um launaþróun á Íslandi í ljósi gagna sem tekjublað Frjálsrar verslunar gefur út ár hvert. 

Þorsteinn segir það algeran óþarfa að grennslast fyrir um launakjör einstaklinga, enda um persónuupplýsingar að ræða sem eigi að heita einkamál hvers og eins, en þessar tölur séu hins vegar allar fyrirliggjandi hvað starfsstéttir varði í gögnum Hagstofunnar á hverjum tíma - og vilji menn skoða hvað verið sé að greiða mismunandi hópum í laun geti þeir hinir sömu kynnt sér það með almennum hætti hjá þessum opinbera aðila. Hin aðferðin sé einungis gerð til að svala forvitni náungans.

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ er ósammála Þorsteini; birting á launatölum skapi aðhald og eðlilegan samanburð og sé sjálfsagður partur af lýðræðislegri upplýsingu. Undir það tekur Benedikt Jóhannesson útgefandi Frjálsrar verslunar en alltaf séu uppi einhverjir stjórnmálamenn sem vilji hampa leyndarhyggjunni og halda upplýsingum frá almenninig. Hann vilji ekki vera í þeim hópi. 

Þáttinn má nálgast í heild sinni og í klippum á hringbraut.is.