Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefur ekki mikla trú á Borgarlínunni ef marka má Facebook-færslu sem hann birti fyrr í dag. Hann vill að þeir aðilar sem tóku ákvörðun um að koma Borgarlínunni í framkvæmd taki sjálfir fjárhagslega ábyrgð.
„Ég hef á tilfinningunni, að þessi borgarlína verði gagnslaus peningahít. Hún verði dýrari og færri munu nota hana en áætlanir segja til um. Það getur auðvitað vel verið, að ég hafi rangt fyrir mér. En er ekki einhver leið til þess, að þeir, sem þetta ákveða, taki sjálfir fjárhagslega ábyrgð á einhverju leyti á eigin ákvörðunum?"
Með færslunni fylgir grein þar sem Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri segir að hann vilji flýta fyrir uppbyggingu Borgarlínunar. Hannes er ósammála Degi og telur að fólk vilji almennt ekki ferðast í strætisvögnum. Þá telur hann skynsamlegra að eyða almannafé í að breikka Miklubraut.
„Þá fara þeir ef til vill gætilegar með almannafé. Ef fullyrðingar Dags standast ekki og þetta mun kosta miklu meira og skila miklu minna fyrir borgarbúa en hann segir, þá greiði hann eitthvað úr eigin vasa. Mín skoðun: Fólk vill ekki ferðast í strætisvögnum. Það vill ferðast í bílum. Og besta samgöngubótin væri að kaupa upp öll húsin á Miklubraut sunnan við Miklatún (Klambratún), þar sem umferðarstíflan myndast alltaf, rífa þau og breikka Miklubraut, og taka einn stigagang af fjölbýlishúsinu á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar. Jafnframt mætti taka Hringbrautina í stokk milli Háskólasvæðisins og Tjarnarsvæðisins.