Telst kynlíf til lýðheilsumála?

Það skorti ekki skemmtilegt umfjöllunarefni í Heilsutímanum á Hringbraut í gærkvöld, en þar var meðal annars fjallað um hvort kynlíf væri lýðheilsumál og hvernig hægt sé að nýta tæknina til verkjameðferðar.

Þáttinn er hægt að nálgast hér á hringbraut.is, en hann byrjar byrjar á ferð út á Fiskislóð á Granda en þar var spennandi jógastöð sem heitir Sólir opnuð fyrir hálfu ári. Sólveig Þórarinsdóttir jógakennari er eigandinn en hún er viðskiptafræðingur  sem vann í bankageiranum sem söðlaði um og fylgdi hjartanu. Sólir sækir innblástur sinn til  vinsælla jógastúdíóa í Los Angeles.

Í þættinum talar umsjárkonan Gígja Þórðardóttir við Sigríði Dögg Arnardóttur eða Siggu Dögg eins og flestir þekkja hana, en þar er á ferðinni kynfræðingur sem hefur vakið mikla athygli fyrir hispurslausa umræðu um allt sem tengist kynlífi. \"Við ræðum við hana um hvort kynlíf sé lýðheilsumál,\" segir Gígja um efni þáttarins.

Róbert Magnússon sjúkraþjálfari hjá Atlas sjúkraþjálfun fjallar loks um mikilvægi réttrar setstöðu og Brynja Ingadóttir hjúkrunarfræðingur og doktorsnemi segir áhorfendum frá notkun tölvuleikja í verkjameðferð sjúklinga.

Heilsutíminn er frumsýndur klukkan 20:00 öll mánudagskvöld, en hann er unninn í samvinnu við Fréttatímann.