Boðað verkfall Starfsgreinasambandsins gæti verið í uppnámi eftir að Félagsdómur ógilti í gær verksfallsboðun félagsmanna Rafiðnaðarsambandsins á þeim forsendum að samböndin sjálf hafi ekki verkfallsréttin í hendi sér heldur aðeins aðildarfélög þeirra. Fyrir vikið varð ekki af boðaðri vinnustöðvun á RÚV í morgun. Þetta þýðir líka að félagsmenn innan Starfsgreinasambandsins, sem eru 10 þúsund, gætu þurft að kjósa aftur um verkfallsboðun á sömu forsendum - og þá hver og einn innan sinna félaga sem heyra til sambandsins.
Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag en þar segir Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins niðurstöðu Félagsdóms vera skýra og að við fyrstu sýn "virðist okkur dómurinn hafa fordæmisgildi," eins og hann orðar það í samtali við blaðið.
Í niðurstöðu Félagsdóms í gær segir að verkalýðsfélög geti framselt samningsumboð til landssambanda en slíkt framsal geti hinsvegar ekki lögum samkvæmt náð til verkfallsréttar.