Steingrímur J. Sigfússon forseti Alþingin segir málþóf Miðflokksins vegna þriðja orkupakkans vera algjört einsdæmi í sögu Alþingis. Aldrei áður hafi einn flokkur staðið fyrir slíku málþófi. Þá er þolinmæði annarra þingmanna smám saman að bresta en þingið er nánast óstarfhæft. Í samtali við Fréttablaðið segir Steingrímur:
„Það er augljóst að það er búið að ræna völdum hér um stundarsakir.“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins sagði í gær við RÚV að málþófið væri rétt að byrja og tekur í svipaðan streng í samtali við Fréttablaðið. Segir hann nýjar upplýsingar vera að koma uppá yfirborðið. Sigmundur segir:
„Þær upplýsingar kalla á spurningar sem við viljum fá svör við. Því teljum við að það myndi flýta fyrir málinu ef stuðningsmenn tillögunnar gætu talað fyrir henni og veitt okkur þau svör sem við teljum okkur þurfa.“
Fréttablaðið ræddi svo við þingmenn sem telja að markmið Sigmundar sé að Steingrímur J eða þingmenn stöðvi umræðurnar á grundvelli þingskapalaga. Hingað til hafi enginn viljað láta það eftir honum. Yrði það raunin liti Sigmundur svo á að hann kæmi út sem sigurvegari í „þessari störukeppni. Menn bíði hins vegar eftir því að Miðflokksmenn brotni og hætti málþófinu.“