Ofbeldi eykst með frjálsri vínsölu

Stórtemplarahreyfingin á Íslandi, sem hélt málþing um áfengi, aðgengi og lýðheilsu í Reykjavík í gærkvöld varar stórlega við frjálsri sölu áfengis og telur enda að þar sé ekki um neina venjulega neysluvöru að ræða. Rúnar Vilhjálmsson, sérfræðingur í áfengisvörnum sagði á málþinginu að aðgengi að áfengi hefði aukist gífurlega hér á landi á síðustu áratugum, en alger sprengin yrði þar ef frumvarp um frjálsa sölu áfengis í matvörubúðum næði fram að ganga. Hann lagði áherslu á að gera langtímarannsóknir á þessu sviði en nýlegar athuganir benti eindregið til þess að áfengisneysla í vissum hópum hefði aukist verulega, einkum í aldurshópnum 51 til 61 árs.


Rúnar benti á viðamikla rannsókn Gruenewald og Remer í Kaliforníu frá árinu 2006 þar sem fram kom að fjölgun söluaðila áfengis á einstökum svæðum tengdist auknum ofbeldisslysum samkvæmt sjúkraskýrslum á sömu svæðum á 6 ára tímabili. Í norskri langtímarannsókn sem tók yfir 35 ára tímabil komu einnig í ljós marktæk og markviss tengsl milli fjölgunar sölustaða áfengis á svæðum í Noregi og aukinna ofbeldisbrota. Rúnar segir niðurstöður rannsókna sýna skýrt að þetta gildir bæði um ölvun, ölvunarakstur, slys og ofbeldi.  Það bendir til að aukin nálægð sölustaða og aukið aðgengi að áfengi hafi mest áhrif á neyslu unglinga og ungs fullorðins fólks, raunar einkum yngri karlmanna. Rúnar segir að ef frumvarpið verði samþykkt og sala áfengis gefin frjáls muni ríkið missa stjórn á verðlagningu áfengis sem hefur mikið forvarnagildi, áfengisauglýsingar muni aukast til muna þar sem áfengissalar reyni umfram aðra að selja sínar vörur. Búast má við aukinni ölvun, ölvunarakstri, slysum, ofbeldisverkum, og aukinni tíðni sjúkdóma sem leiða aukinni drykkju einstaklinga yfir lengri tíma, s.s. hjartasjúkdóma, nokkurra tegunda krabbameina og lifrarsjúkdóma.