Telja nær ekkert svigrúm til launahækkana

 
Svigrúm til launahækkana er lítið sem ekkert, segja Samtök atvinnulífsins og vísa til könnunar sem gerð var meðal aðildarfyrirtækja. Að jafnaði töldu ferðaþjónustufyrirtæki svigrúmið til launahækkana á árinu 2019 vera 1,2%, fyrirtæki í útflutningi vöru og þjónustu 1,7% en önnur fyrirtæki 2,1%. Meðalniðurstaðan var 1,9%.
 

Nú stendur yfir opinn fundur Samtaka atvinnulífsins um komandi kjarasamninga og svigrúm atvinnulífsins til launahækkana

Í frétt samtakanna segir að það sé ljóst það hafi harðnað verulega á dalnum í ferðaþjónustu en að jafnaði töldu 65% ferðaþjónustufyrirtækja ekkert svigrúm fyrir hendi til launahækkana á næsta ári. Staðan er svipuð í öðrum greinum en rúmlega helmingur útflutningsfyrirtækja taldi ekkert svigrúm til launahækkana og 36% annarra fyrirtækja. Að meðaltali telja 43% forsvarsmanna ekkert svigrúm til launahækkana 2019.

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/telja-naer-ekkert-svigrum-til-launahaekkana