Telja líkur á að atvinnuleysi fari í 28 prósent: ræða viðbrögð

VR setti framtíðarnefnd á laggirnar í vor og tekur hún til starfa í ágúst. Forsendan fyrir stofnun nefndarinnar er fjórða iðnbyltingin og aukin sjálfvirkni í atvinnulífinu. Meginhlutverk nefndarinnar er að gæta þess að fjórða iðnbyltingin verði ekki aðeins atvinnurekendum til hagsbóta.

Fréttablaðið hefur þetta eftir Friðrik Boða Ólafssyni formanni nefndarinnar.

„Eftir því sem tækninni f leytir fram, á síauknum hraða, verður erfiðara að finna jafnvægi á vinnumarkaði. Fjöldi starfa mun glatast og önnur skapast í staðinn. Það þarf að greina hvaða störf þetta eru og aðstoða fólk við að laga sig að því.”

Er haft eftir honum. Hann sagði jafnframt að eiginleg stefnumótun hafi ekki enn farið fram í nefndinni en vonir standi til að hún muni hafa leiðandi áhrif á störf VR á næstu árum. Áhersla verður lögð á að sjálfvæðingin skili sér í þágu launafólks, til dæmis með styttingu vinnuvikunnar. Einnig hafi sagan sýnt að launaþróun muni horfa til verri vegar fyrir verkafólk ef ekkert verður að gert.

„Hraðinn á sjálfvæðingunni núna er hins vegar fordæmalaus og við þurfum að grípa þá sem finna sig ekki í þessu breytta hagkerfi.”

Hann sagði að þau störf sem séu í mestri hættu á að hverfa séu afgreiðslustörf og sé sú þróun nú þegar hafin í stórmörkuðum með tilkomu sjálfsafgreiðslukassa.

Hann sagði að svörtustu spár geri ráð fyrir að 28 prósent vinnumarkaðarins sé í verulegri hættu á að verða sjálfvæddur á næstu 15 árum og önnur 60 prósent séu í nokkurri hættu. Ef fleiri störf glatast en eru sköpuð aukist atvinnuleysið.

„Hér má ekki myndast samfélag þar sem yfirstéttin þarf ekki á starfsfólki að halda og aðrir verði bæði atvinnulausir og valdalausir. Ég sé ekki hvernig hægt er að hafa samfélagslegan stöðugleika með svo hátt atvinnuleysi,” segir Friðrik.