Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur hafnað hugmynd Reita fasteignafélags hf. um að reisa 110 metra háan vita við Sæbraut, til móts við Höfða.
Hugmynd Reita var að búa til nýja upplifun í borgarrýminu \"þar sem sýning og upplýsingarveita eru sameinuð í formi útsýnis- og fræðsluvita.“
Það var niðurstaða skipulagsfulltrúa borgarinnar að hugmyndin samræmist ekki stefnu um skipulag byggðar í næsta nágrenni við Höfða.