Forsvarsmenn þriggja stærstu kjúklingabúa landsins búa sig undir að farga tugþúsundum matfugla á næstu dögum sakir þess að dýralæknar geta ekki, sökum verkfalls þeirra, verið viðstaddir slátrun dýranna eins og lög kveða á um.
Fuglabændur gagnrýna mjög að ekki skuli fást undanþágur til slátrunar, þó ekki væri til annars en að "koma í veg fyrir þessa fáránlegu sóun á matvælum" eins og einn þeirra komst að orði í samtali við hringbraut.is seint í gærkvöld. Hann sagði næsta leik að breyta sáturhúsum í gasstöðvar; færa þangað bílfarma af fuglum til að farga og grafa í jörð. Vanalega féllust fuglabændur á þessar aðfarir þegar sjúkdómar kæmu upp á búum þeirra - og litu á þá aðgerð sem sjálfsagða og raunar greininni til framdráttar - en nú væri um hreina og klára sóun að ræða í algerri andstöðu við allt tal um heilbrigða matvælaframleiðslu. Dýralæknar væru með aðgerðum sínum að stuðla að dýraníði.
kkert útlit virðist fyrir sátt í deilu BHM og viðsemjenda þeirra á næstu dögum samkvæmt yfirlýsingum forkólfa BHM í gær sem segja óravegu í land samninga.