Telja dýralækna ógna velferð

Íslenskir svínabændur segja stefna í algert óefni á svínabúum um allt land en þeir hafa ekki getað slátrað dýrum sínum um margra vikna skeið vegna verkfalls dýralækna sem hafa ekki veitt undanþágur í þeim efnum. Þrengslin á búunum eru fyrir vikið allt of mikil.


Farið er að bera á verulegum kjötskorti í matvöruverslunum hér á landi vegna verkfalls dýralækna sem staðið hefur yfir í mánuð. Eina kjötið sem til fellur við þá slátrun sem þó er leyfð fer í frystingu, óunnið. Þetta á til dæmis við um kjúkling, en bæði innfluttur kjúklingur og heimaalinn er að verða ófáanlegur í búðum. Innfluttan kjúkling þarf að votta vegna reglna um dýrasjúkdóma, þeim innlenda má ekki slátra nema að viðstöddum dýralækni.


Svínabændur segja þó hag sinn enn verri en annarra matvælaframleiðenda. Bú þeirra séu einfaldlega ekki gerð til að takast á við vanda af þessu tagi. Grísir stækki hratt og fyrirferðin valdi því að mjög þröngt sé um dýrin þegar þeim er ekki slátrað á réttum tíma. Fyrir utan tekjumissi, sem sé tilfinnanlegur, þá geti þeir ekki horft upp á dýr sín þjást vegna enn frekari þrengsla í búunum - og ekki sé sá kostur fyrir hendi að hleypa þeim út þar sem frostharkan og norðabálið bíði.