Telja alþjóðlega kreppu ósennilega í bráð

Sérfræðingar hjá stærstu hugveitum Bandaríkjanna á sviði efnahagsmála telja aðra alþjóðlega kreppu ósennilega í bráð. Adam Tooze prófessor í sagnfræði við Columbia-háskóla og höfundur nýrrar bókar um kreppuna tekur undir þetta.

Í tilefni þess að nú eru tíu ár liðin frá alþjóðlegu fjármálakreppunni eru margir fræðimenn við ýmsar stofnanir að velta fyrir sér sömu spurningunni um þessar mundir.

Er önnur alþjóðleg fjármálakreppa handan við hornið?

„Það mun alltaf koma önnur fjármálakreppa. Sú skoðun að fjármálakreppa geti ekki orðið í þróuðum ríkjum og sú skoðun að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fáist aðeins við fjármálakreppu á nýjum mörkuðum í þróunarríkjum en ekki í þróuðum ríkjum er einfaldlega röng,“ segir Edwin M. Truman, hagfræðingur hjá Peterson Institute.

Nánar

http://www.visir.is/g/2018181008989