Ragnar Þór Ingólfsson var í vikunni kjörinn nýr formaður VR til næstu tveggja ára. Hann segir að félagar í VR hafi alltaf verið „stungin í bakið\" eftir gerð kjarasamninga. Hann bendir á að VR félagar hafi látið of mikið yfir sig ganga og ekki beitt verkfallsvopninu í langan tíma. Ragnar Þór segir forystu verkalýðshreyfingarinnar ekki njóta trausts og það sé það sem hann vilji byggja upp.
Ragnar Þór segir SALEK vera afkvæmi forystunnar sem njóti ekki trausts og stjórnvalda. Launþegum sé ætlað að taka ábyrgðina á friðsömum launamarkaði. Hann telur það ekki rótttækt að hafna með svo afgerandi hætti því sem ASÍ hefur stefnt að og segir samtökin í heild gríðarlega mikilvæg. Hann sé bara að benda á það sem margir aðrir gagnrýna.
Ragnar sigraði Ólafíu B. Rafnsdóttur í formannsbaráttu og fékk 63 prósent greiddra atkvæða. Ólafía fékk rúm 37 prósent. Hann tekur við daginn eftir aðalfund VR þann 28.mars og hættir í stjórn VR eftir átta ára setu þar. Hann hóf þátttöku í VR ásamt fleirum eftir hrun þegar mikil uppstokkun varð á stjórn félagsins, m.a. vegna tengsla við fjármálafyrirtæki.