Tekur yfir lífeyrisskuldbindingar bændasamtakanna

Undirritað hefur verið samkomulag um að frá og með næstu áramótum muni ríkið taka yfir lífeyrisskuldbindingar Bændasamtakanna að upphæð 172 milljónir króna á ári. Samkvæmt samningnum mun framlag ríkisins vegna búvörusamninga lækka árlega um samsvarandi fjárhæð frá og með árinu 2019.

Frá þessu segir á vefnum bondi.is

Þar segir:

Þegar Bændasamtök Íslands voru stofnuð árið 1995 með sameiningu Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda ábyrgðist ríkissjóður skuldbindingar Bændasamtaka Íslands í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR). Bændasamtökin hafa um árabil óskað eftir því að lífeyrisskuldbindingarnar yrðu færðar alfarið yfir til ríkisins enda arfur frá gamalli tíð þegar starfsfólk Búnaðarfélagsins, Stéttarsambandsins, Framleiðsluráðs og búnaðarsambandanna greiddi í B-deildina. Frá því að Bændasamtökin voru stofnuð hafa lífeyrisskuldbindingar verið færðar á gjaldahlið þeirra en fjármögnunin komið úr búnaðarlagasamningi og síðar rammasamningi.

Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri BÍ, segir undirritunina þýðingarmikla fyrir samtök bænda en árlegar lífeyrishækkanir vegna skuldbindinganna hafa verið fjármagnaðar af framlögum rammasamnings milli bænda og ríkisvalds.

„Bændasamtökin hafa um árabil leitað samninga um breytingar á ábyrgð þessara skuldbindinga. Þetta snýst um þá starfsmenn félaga og stofnana í landbúnaði sem töldust opinber eða hálfopinber og eiga lífeyrisréttindi í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Það er svo sannarlega gleðiefni að þessu sé nú loksins lokið“, segir Sigurður.

Á myndinni með þessari frétt eru: Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. Mynd / ANR