Tekur skólinn stakkaskiptum?

Samfélagið hefur tekið örum breytingum á síðustu árum sem meðal annars eru drifnar áfram af nýrri tækni en einnig í mörgum tilfellum breyttu hugarfari mannkyns. Skólinn hefur ekki farið varhluta af þessum breytingum og ljóst er að hann hefur þurft að aðlaga sig breyttum veruleika og þróast í takt við tíðarandann. Um þessa stöðu sem kennarar, skólastjórnendur og nemendur standa frammi fyrir, verður fjallað í næsta þætti af Skólinn okkar sem sýndur er hér á Hringbraut.

Í þættinum, sem ber yfirskriftina „Framtíðarskólinn“, verður meðal annars rætt við tvo unga kennara um skólakerfið sem þeir starfa við í dag og hvernig þeir telja að það muni breytast. Kíkt er í heimsókn í Brekkuskóla á Akureyri þar sem MictoBit smátölvur eru notaðar til að kenna grunnskólanemum forritun og svo eru nemendur og kennarar í leik-, grunn- og framhaldsskólum spurðir hvernig þeir vilji að skóli framtíðarinnar líti út.

Umsjónarmenn þáttarins eru þau Aðalbjörn Sigurðsson og Margrét Marteinsdóttir en þátturinn er frumsýndur á Hringbraut þriðjudaginn 4. apríl klukkan 20.30.