Þingmennirnir fyrrverandi, Karl Garðarsson og Margrét Tryggvadóttir, eru gestir í Þjóðbraut í kvöld. Þau velta fyrir sér stöðunni í stjórnmálunum, hvort Katrínu Jakobsdóttur tekst að mynda ríkisstjórn.
Þau sjá stöðuna ekki sömu augum. Margrét er hlynnt hugsanlegri ríkisstjórn en Karl hefur meiri efasemdir.
Þau tala meðal annars um reynsluleysi margra þeirra sem vinna nú að myndun ríkisstjórnarinnar og er viss um að þau reynslumeiri muni ráða ferðinni.
Þjóðbraut er á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.