Tekjuskattur lækkaður og afnám hafta

Ríkisstjórn Íslands stefnir að lækkun tekjuskatts í fjárlagafrumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi.  Ríkissjóður verður samkvæmt frumvarpinu hallalaus  þriðja árið í röð.

Tollar verða afnumdir auk þess sem tekjuskattur einstaklinga lækkar. Elli- og örorkulífeyrir hækkar. Framlög til húsnæðismála aukast, velferðarkerfið verður styrkt og heilsugæsla efld. Aukin framlög munu renna til nýsköpunar og þróunar og segir að með losun hafta skapist betri horfur í efnahagslífinu.

Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir 15,3 milljarða króna afgangi. Afgangur af frumjöfnuði verður 73 milljarðar.

Breytingar á skattkerfinu á árinu 2016 miða að því að „bæta enn frekar lífskjör á Íslandi og auka um leið skilvirkni kerfisins“. Stærsta breytingin snýr að tekjuskatti einstaklinga og afnámi tolla á fatnað og skó. Stefnt er að því að tollar á fatnað og skó verði afnumdir við næstu áramót. Þá er jafnframt áformað að allir aðrir tollar en þeir sem leggjast á tiltekin matvæli verði lagðir af 1. janúar 2017.

Tekjuskattur einstaklinga lækkar í tveimur áföngum og við þann síðari fækkar skattþrepum úr þremur í tvö. Skattprósenta í lægra þrepi verður lækkuð úr 22,86% í 22,68% 1. janúar 2016 og í 22,50% við ársbyrjun 2017. Álag í milliþrepi verður lækkað um helming frá ársbyrjun 2016 og fellur það saman við neðsta þrepið um áramótin 2016/2017.

Greiðslur barnabóta halda áfram að hækka, en frumvarpið gerir ráð fyrir 3% hækkun bótafjárhæða. Þá er gert ráð fyrir 9,4% hækkun á bótum elli- og örorkulífeyrisþega og atvinnuleysisbóta.