Tekjur forstjóra fyrirtækja í kauphöllinni

Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar voru launatekjur á mánuði árið 2014 hjá forstjórum fyrirtækja sem skráð eru á Kauphöll Íslands þessar:
 
Finnur Árnason forstjóri Haga 5,9 m.kr., Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marels 5,1 m.kr., Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri Granda 5,0 m.kr., Eggert Benedikt Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri N-1, 4,4 m.kr., Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group 3,7 m.kr., Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskips 3,7 m.kr., Stefán Sigurðsson forstjóri Vodafone 3,4 m.kr., Sigurður Viðarsson forstjóri TM 3,4 m.kr., Hermann Björnsson forstjóri Sjóvár 3,1 m.kr., Eggert Þór Kristófersson forstjóri N-1, 2,9 m.kr., Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri VÍS 2,8 m.kr., Guðjón Auðunsson forstjóri Reita 2,6 m.kr., Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins 2,5 m.kr., Garðar Friðjónsson forstjóri Eikar 2,2 m.kr. og Finnur Oddsson forstjóri Nýherja 2,1 m.kr.
 
Forstjóri Össurar hf. á lögheimili erlendis og er því ekki á listanum.
 
Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands (Nasdaq á Íslandi ) var með 3,6 m.kr. í tekjur á mánuði árið 2014.