Eimskip: tekjur aukast um 20 ma.kr.

Hagnaður Eimskips nam 16,8 milljónum evra á síðasta ári, jafngildi liðlega 2 milljarða króna á núverandi gengi, samanborið við 21,9 milljóna evra hagnað 2016. Neikvæð breyting á gengismun á milli ára að fjárhæð 5,8 milljónir evra hafði mest áhrif, að því er fram kemur í afkomutilkynningu félagsins til Kauphallar Íslands. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA, nam 57,2 milljónum evra og jókst um 7,0% milli ára. Tekjur Eimskips á síðasta ári námu samtals 664,0 milljónum evra, jafngildi 82,5 milljarða króna, og hækkuðu þær um 150 milljónir evra eða 29,2% frá árinu 2016. Í áætlunarsiglingum jókst magn um 4% og hækkuðu tekjur af þeim um 58 milljónir evra eða 15%. Í flutningsmiðlun jókst magnið um 41% og hækkuðu tekjurnar um 92 milljónir evra eða 69%. Þar af voru 73,2 milljónir evra vegna nýrra fyrirtækja. Eiginfjárhlutfall Eimskips var 53,2% í árslok og námu nettóskuldir 102,8 milljónum evra. Gylfi Sigfússon forstjóri segir í afkomutilkynningu að árið 2017 megi kalla „ár vaxtar“ hjá Eimskip, þar sem flutningsmagn, tekjur og EBITDA hafi aldrei verið hærri. „Árið var frábært í flutningsmiðlunarstarfseminni með nýjum fyrirtækjum í samstæðunni og innri vexti. Félagið stóð frammi fyrir erfiðleikum í áætlunarsiglingum vegna sjómannaverkfallsins í byrjun ársins og ójafnvægis í flutningum tengdum Íslandi sem hefur aldrei verið meira og hafði neikvæð áhrif á rekstrarafkomu.“ Stjórn Eimskips leggur til að greiddur verði arður til hluthafa sem nemur um 1.269 milljónum króna eða sem samsvarar 61% af hagnaði ársins 2017.