Tekjur af erlendum ferðamönnum sem koma hingað til lands eru stórlega ofmetnar að mati sérfræðinga við Rannsóknarmiðstöð ferðamála, en þeir segja að þær séu einungis 60% af þeim upphæðum sem gefnar hafa verið upp til þessa.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í morgun þar sem vitnað er í aðsenda grein doktoranna Edwards Hákon Huijbens og dr. Christi Frent í blaðinu, en þeir hafa greint og sundurliðað tekjur af ferðamönnum í fræðum sínum á undanförnum misserum: \"Við höfum verið að horfa upp á kapphlaup um að ferðaþjónustan sé stærst og best. Þannig fer hún áfram með stærstu mögulegu tölurnar í tekjum til þjóðarbúsins. Það getur þýtt í stóra samhenginu að menn fari í of miklar fjárfestiungar því þeir telji meiri fjármuni í innlendri ferðaþjónustu en eru í rauninni,\" segir Edward og heldur því fram að stjórnstöð ferðamála veifi röngum tölum í þessum efnum - og það vísvitandi.
Talað hefur verið um að tekjur af ferðaþjónustu geti numið um 1,000 milljörðum árið 2030. Í rauninni eru aðeins 60% þess tekjur af komu erlendra ferðamanna, en hin prósentin verða til erlendis að því er fræðimennirnir benda á: \"Að mínu mati er þetta ekki fölsun heldur skilnmingslehysi stjórnvalda,\" segir Edward í Fréttablaðinu í dag.