Tekjuhæsta mynd balta á heimsvísu

Samkvæmt erlendum fréttaveitum hefur stórmynd Baltasars Kormáks, Everest, halað inn nokkuð á annað hundrað milljóna bandaríkjadala á alþjóðlegum vettvangi. Fleiri hafa séð Everest en fyrri myndir Baltasars utan landsteinanna sem vekur athygli á aðeins þremur vikum.

Sömu sögu er að segja um vinsældir myndarinnar innanlands. Um 50.000 Íslendingar hafa séð myndina. Hefur verið spáð að um 100.000 Íslendingar sjái myndina í bíó en um 85.000 manns sáu vinsælustu mynd Baltasars á innanlandsmarkaði fyrir Everest, Mýrina.