Tekjuafkoma hins opinbera var jákvæð um 18,8 milljarða króna á fjórða ársfjórðungi 2017 að því er fram kemur í nýjum tölum Hagstofu Íslands um bókhald ríkisins.
Þetta er mun betri niðurstaða en á sama tíma 2016 þegar afkoman var neikvæð um 88,5 milljarða króna, en tekjuhallinn á fjórða ársfjórðungi 2016 skýrist öðru fremur af 105,1 milljarðs króna fjármagnstilfærslu frá ríkissjóði til Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Tekjuafgangurinn nam 2,8% af landsframleiðslu ársfjórðungsins eða 6,3% af tekjum hins opinbera.