Tatjana Latinovic, formaður Kvenréttindafélags Íslands, segir í pistli sínum sem hún birtir á vef Fréttablaðsins að ekki sé nóg að senda út yfirlýsingar þegar kemur að kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustað gegn konum. Krefst hún þess að stjórnvöld og fyrirtæki ráðist í alvöru breytingar til að tryggja öryggi kvenna á vinnustöðum landsins.
„Við krefjumst þess að stjórnvöld, samtök atvinnulífsins og launafólks og fyrirtæki ráðist í alvöru breytingar til að tryggja öryggi kvenna og starfsfólks á vinnustað. Það er ekki nóg að senda út yfirlýsingar og vinna að stefnumótun meðal stjórnenda, við viljum sjá alvöru aðgerðir. Við viljum sjá tekið fast á áreitni og ofbeldi á vinnustað, í dómskerfinu og öllum sviðum samfélagsins. Umfram allt köllum við á róttæka hugarfarsbreytingu okkar allra, af því að ef hún á sér ekki stað duga aðgerðir vinnumarkaðarins lítið.“
Í rannsókn sem unnin var af Háskóla Íslands kom fram að um þriðjungur kvenna á Íslandi hafi orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í bæði námi eða starfi. Tatjana segir að skila eigi skömminni til þeirra sem hafa látið ofbeldi gagnvart konum viðgangast í aldaraðir íslensku samfélagi og að nú sé nóg komið.
„Konur á Íslandi skiluðu skömminni þangað sem hún á heima: til gerendanna, til atvinnurekenda, til stjórnvalda, til réttarkerfisins, til samfélagsins sem hefur látið ofbeldi og misrétti viðgangast um aldaraðir. Nú er nóg komið! Við erum ekki búin að afgreiða #MeToo. Við krefjumst tafarlausra aðgerða stjórnvalda, atvinnurekenda og samtaka atvinnulífsins. Tökum höndum saman og sköpum saman samfélag sem byggist á jafnrétti, mannréttindum og virðingu fyrir okkur öllum. Breytum ekki konum, breytum samfélaginu!“