Sjónvarpsþátturinn Tara og Trixin hefur göngu sína Hringbraut í kvöld og verður sendur út vikulega klukkan 21.45 á miðvikudagskvöldum og endurtekinn á sama tíma á föstudagskvöldum.
Þáttunum er ætlað að fræða og upplýsa fólk um förðun, hárgreiðslu og önnur útlitsráð, en umsjónarmaður þáttanna er Tara Brekkan sem hefur getið sér gott orð fyrir þætti af þessu tagi á netinu á undanförnum misserum.
Tara tekur fyrir einn einstakling í hverjum þætti, sýnir fólki hvernig best fer á því að farða hann, greiða og gefa ráð sem henta andlitsfalli, húðlit og hárgerð. Eins og nafnið gefur til kynna er hún með trixin á hraðbergi og er óspör í hverjum þætti að deila þeim með áhorfendum.
Þátturinn er sem fyrr segir frumsýndur alla miðvikudaga klukkan 21.45 og er 15 mínútur að lengd.