Tara Margrét: Feit börn upplifa mikla vanlíðan í íþróttatímum og skólasundi

Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, baráttukona gegn fitufordómum, segir feit börn upplifa mikla vanlíðan í íþróttatímum og í skólasundi.

Salvör Nordal, umboðsmaður barna, hefur hvatt Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, til að taka til skoðunar fyrirkomulag sundkennslu í grunnskólum. Hún segir í erindi til ráðherra að nemendur í eldri bekkjum grunnskóla, og þá sérstaklega hinsegin börn, lýsa upplifun af einelti og áreitni í sundkennslu. Telja nemendurnir margir hverjir að sundkennsla sé tilgangslaus og til þess að valda andlegri vanlíðan.

Ekki er minnst á feit börn í erindi Salvarar. Tara Margrét segir á Facebook að hún sakni þess að minnst sé á þann hóp:

„Á sama tíma og ég fagna því innilega að sérstök áhersla sé lögð á viðkvæma stöðu hinsegin barna í skólasundi veldur það mér vonbrigðum að sjá hvergi minnst á feit börn en þau upplifa einnig mikla vanlíðan í íþróttatímum og skólasundi,“ segir Tara Margrét. „Af hverju erum við svona treg til að taka upp hanskann fyrir þennan hóp?“