Tapar theresa may stórt?

Breska dagblaðið the Times birtir skoðanakönnun um fylgi þingflokkanna. Þar er því spáð að breski Íhaldsflokkurinn glati meirihluta sínum í neðri deild breska þingsins í þingkosningunum í næstu viku.

Spáin er sú að Íhaldsflokkurinn hljóti 310 þingsæti  - 20 færri en í þingkosningunum árið 2015 - og 16 færri en tryggja afgerandi þingmeirihluta.

Verkamannflokkunum er spáð 257 þingsætum og Skoska þjóðarflokknum 50 þingsætum og Frjálslyndum demókrötum 10 þingsætum.

Sérfræðingar benda þó á að við kjöraðstæður getur Íhaldsflokkurinn fengið svo mörg sem 345 þingsæti og svo fá sem 274 þingsæti við afleitar aðstæður. Þessi spá er því birt með fyrirvara um umtalsverða óvissu.

rtá

Nánar www.thetimes.co.uk