Staða Framsóknarflokksins er ekki góð. Flokkurinn fékk 24,4 prósent í kosningunum 2013, en mælist nú, í skoðanakönnuninni sem Félagsvísindadeild Háskólans, vann fyrir Morgunblaðið með 9,7 prósent. Þess sést stað í öllum kjördæmum.
Mest er tapið í Reykjavík norður, þar sem Karl Garðarsson alþingismaður leiðir listann. Nú mælist fylgi Framsóknar aðeins tvö prósent í Reykjavík norður, en fékk 16,4% í kosningunum 2013. Sem segir að aðeins 12% þeirra sem kusu Framsókn þar síðast hyggjast gera það aftur.
Önnur versta niðurstaðan er í Norðausturkjördæmi, kjördæmi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Aðeins þriðjungur þeirra sem kusu Framsókn þar síðast, hyggst gera það aftur nú, samkvæmt könnuninni.
Litlu betri er staðan í Norðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Minnst er fallið í Reykjavík suður, þar sem Lilja Alfreðsdóttir hefur tekið við af Vigdísi Hauksdóttur. 2013 fékk Framsókn 16,8% en fengi nú 10% samkvæmt könnuninni.
| Framsóknarflokkurinn | 2013 | Nú | Breyting | Oddviti nú | Oddviti áður |
| Norðausturkjördæmi | 35% | 12% | -66% | Sigmundur Davíð | Sigmundur Davíð |
| Norðvesturkjördæmi | 35% | 13% | -63% | Gunnar Bragi | Gunnar Bragi |
| Reykjavík norður | 16% | 2% | -88% | Karl Garðarsson | Frosti Sigurjónsson |
| Reykjavík suður | 17% | 10% | -41% | Lilja Alfreðsdóttir | Vigdís Hauksdóttir |
| Suðurkjördæmi | 34% | 13% | -62% | Sigurður Ingi | Sigurður Ingi |
| Suðvesturkjördæmi | 22% | 11% | -50% | Eygló Harðardóttir | Eygló Harðardóttir |