Tapa hálfri milljón á hverju blaði

Útgáfa Morgunblaðsins borgar sig ekki, ekki fjárhagslega hið minnsta. Á síðasta ári var tapið 160 milljónir króna. Lætur nærri að tap af hverju tölublaði Moggans sé um hálf milljón króna.
Nánast allt hlutafé í útgáfu Morgunblaðsins er í eigu stórra og öflugra útgerðarfyrirtækja.
Kjarninn fjallar ítarlega um rekstur Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins. Þar kemur fram að Árvakur hefur tapað tæpum 1,5 milljarði króna frá 2009. Skuldir félagsins hafa verið færðar niður um 4,5 milljarða á sama tíma.
Árvakur hefur tapað umtals­verðum fjár­hæðum á und­an­förnum árum. Rekstr­­ar­tap félags­­ins var 667 millj­­ónir króna árið 2009. Árið eftir tap­aði það 330 millj­­ónum króna alls og árið 2011 nam tapið 205 millj­­ónum króna. Tapið 2012 var 47 millj­­ónir króna. Árið 2013 skil­aði Árvakur sex millj­­óna króna hagn­aði en 2014 var rekst­­ur­inn aftur kom­inn öfugu megin við núllið. Þá tap­aði félagið 42 millj­­ónum króna. Ef tap Þórs­merkur í fyrra er allt vegna tap­rekst­urs á fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­inu Árvakri, líkt og verið hefur árin á und­an, þá nemur tap Árvak­urs frá 2009, þegar uppi­staðan í núver­andi eig­enda­hópi eign­að­ist félag­ið, og til loka síð­asta árs verið tæp­lega 1,5 millj­arðar króna,“ segir í úttekt Kjarnans.